3.3.2021 | 10:18
Morgunblaðið vinstra megin við miðju?
Eftir að hafa fylgst með fréttum í Bandarískum fjölmiðlum sl 4 ár tekur maður eftir því að íslenskir fjölmiðlar flytja einungis fréttir og fréttaskíringar sem komnar eru frá áróðursdeildum Demókrataflokksins í borgarblöðum Austurstrandarinnar.
Að lesa það í fyrirsögn að "innlend hryðjuverk" fari vaxandi vegna "hvítrar kynþáttarhyggju" er ekki bara villandi frétt heldur beinlínis áróður til að réttlæta hertar pólitískar aðgerðir gegn stjórnarandstæðingum í meintu lýðræðisríki.
Blaðamenn Mbl eru annað hvort "latir" þýðendur eða beinlínis "vinstrsinnaðir" skoðanabræður nútíma alræðishyggju sem á rætur sínar í sósílaisma.
Hugtakanotkun er kæruleysisleg. Hvað er hvítur í Bandarísku samhengi? Hvað er hryðjuverk í stóra og smáa samhenginu?
Blaðamenn sem láta þetta fara frá sér er ekki treystandi. Morgunblaðið þarf að hreinsa til hjá sér duglega frekar en að gagnrýna Ríkisútvarpið síknt og heilagt.
![]() |
Innlendum hryðjuverkum fjölgar gríðarlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.