Þetta eru 'engin rök' fyrir Birgittur Borgaranna

'....Stuðningsmenn ESB virðast fyrirmunað að koma með rök fyrir inngöngu, nema að vera alþjóðlegir nútímalegir, og síðan þetta með vextina og verðtrygginguna sem stenst enga skoðun.': tilvitnun í blogg...

Ég tel mig vera stuðningsmann ESB af ástæðum sem getur verið erfitt að rökræða.

T.d. Samvinna við aðrar þjóðir til hagsbóta fyrir almenning og atvinnulíf sem almenningurinn vill búa við. Hvernig á ég að sanna það að ESB sé réttur vettvangur fyrir slíkt. Bara afþví að ESB er eini vettvangur þjóða í heiminum sem býður uppá slíkt er kannski ekki nógu góð rök. Að ESB sé samstarfsverkefni evrópuríkja! Hvenær og hvernig urðu Íslendingar evrópuríki? Er ekki saga okkar grundvölluð á því að við víkingarnir flúðum ofríki evrópskrar kúgunar hingað í frjáls og óháð ríki frjálsborinna karlmanna. Síðan hefure náttúrlega ekkert breyst nema að við tókum upp peninga. Sem er þá enn eitt vandamálið. Af hverju að verja ekki okkar eigin mynt í stað þess að gangast undir ok og hörku ESB skilyrðanna sem jafnvel Svíar og Danir hafa veigrað sér við?

Hvernig á ég að geta rökstutt það að við höfum ekkert uppúr eigin krónu nema grímulaust arðrán íbúa þessa lands af hendi 'útflutningsatvinnuveganna'. Bankakerfið hefur verið galopið fyrir erlendum bönkum síðan EES en enginn vill við okkur líta þrátt fyrir 'hæstu vexti í Evrópu'. Með verðtryggingum og allt hvað eina.

Það hefur enginn trú á hagkerfi okkar enda hefur það sýnt sig að það stóðst ekki prófið. Þetta eru náttúrulega engin rök.

Svo er það framtíðarsýnin: Guð blessi Ísland. Ég er reyndar trúaður og tel að kathólska kirkjan hafi á sínum tíma verið það evrópubandalag sem bjargaði okkur frá algjöru ´hruni´árið 1000. Rökin þá voru að ein lög skyldu gilda í landinu. Til að halda friðinn. Voru það haldbær rök? En það var forsætisráðherra hrunsins sem þetta mælti og bætti því engu nýju við enda höfum við endurnýjað samning okkar við almættið reglulega. Svo guð blessi ísland verður að setja í búning raunverulegra aðstæðna einsog þeirra að fullveldi landsins hefur verið glutrað niður af okkur sjálfum með óarðbærum bankarekstri. Ekki kenna EES um það, við gerðum það allt sjálf.

Því miður setja menn sig í þær skotgrafir að Íslendingur sé einungis sá sem kann þjóðsönginn, tungumálið og styður einokun fyrirtækja í sjávarútvegi framar réttlæti almennings óháð kynþætti og kynfærum hverskonar. Að lýðræði sé það sem Sjálfstæðisflokkurinn og Birgitta Borgaranna ákveður á hverjum tíma að sé lýðræðislegt. ESB sé verkfæri djöfuls sem dragi út úr okkur íslendinginn með glóandi töngum og hafi yfirráðastefnu að sjúklegri nautn til að komast yfir auðlindir okkar. Á með hið eina rétta sé að Íslendingar eigi að sjálfsögðu að hafa fulla heimild til komast í fé og gæði ESB og allra annara landa og þjóða í heiminum.

Ég sé þetta bara ekki svona. Íslendingar munu vera það svo lengi sem þeir vilja og búa hér svo lengi sem þeir una sér. Það er algerlega á þeirra sjálfra valdi að gera það. ESB gerir ekkert svoleiðis fyrir neinn enda ekki markmið sambandsins að taka yfirráðin af neinum. Að menn verði að fara að sameiginlegum reglum og skilja þær og skilgreina af kunnáttu er náttúrulega minnsta krafa og undan því getum við ekki gengist hvort sem er. Fyrir mér eru fiskimiðin ekki sú heilaga kýr að ég sjái henni ver ráðstafað innan ESB en innan íslenskrar hagsmunaklíku sem er á góðri leið með að afhenda téð fiskimið í veðsettum skuldum. Íslenskir bændur og kýr þeirra munu finna sínar leiðir. Fyrst einokunarbandalag Bónus og Krónunnar hafa ekki ráðið niðurlögum bænda nú þegar verður þeim ekki frekar hnikað innan ESB. En þetta eru ekki rök.

Það er rökleysa að halda því fram að Ísland sé nútímalegt evrópuríki sem vill þróast í sömu átt og eftir sömu lögmálum og þau. Að ísland sé ekki nógu fullburða, framsýnt og fjársterkt til að kosta og viðhalda slíku ferli af sjálfsdáðum þó að vilji væri fyrir hendi. Það er rökleysa að halda því fram að erlendar stofnanir geti verið okkur jafn hliðhollar og þær innlendu. Það er rökleysa að álykta að við getum orðið stærri og sterkari í samvinnu við aðrar þjóðir frekar en að gera allt sjálf jvafnvel það sem við vitum að við þjóðin hefur ekki bolmagn til. Að ESB er tilraun til að stilla saman krafta margra ólíkra þjóða. Að þetta er djarft og þarf virka stjórnmálamenn á að halda til frambúðar að heppnist. Þetta er ekki bandalag svefngengla. Að Ísland ræður ekki við stóriðjustefnumál, orkumál og mengunarmál eitt og sér er ekki heldur rök.

Hvernig ætlum við að sætta okkur við að breyta stjórnarskránni til þess eins að afhenda hluta fullveldisins til stofnana ESB? Rök við þessu takk. Auðvitað eru rökin þau að með 'framsali fullveldis' yfir lagasetningu sem lýtur að sameiginlegum grundvelli allra er ekki afsal fullveldis í raun heldur staðfesting á því að við höfum það. Reyndar með öðrum. Snúið? En ekki svo galið. Það er galin hugmynd að við getum varið fullveldi einsog stórveldi. Það finnst mörgum ESB andstæðingum gild rök að VIÐ EIGUM AÐ RÁÐA ÖLLU SJÁLF þó það kosti okkur landið, miðin og að lokum sjálfstæðið og lífið. Það finnst mér stú-pidd. Hugnmyndin að til sé ævarandi, óhrekjandi og óskorað fullveldi er lýðskrum af versta tagi. Fullveldi má til dæmis aldrei ganga gegn mannréttindum sem eru heilagari.

Pólítík er ekki alltaf svo rökræn. Hún er bæði og. Ef hún heppnast þá koma rökin einsog eftirá. Þangað til er þetta bara tilgátur, trú von og kannski kærleikur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Góður pistill.

Jón Gunnar Bjarkan, 30.7.2009 kl. 01:43

2 Smámynd: Lilja Skaftadóttir

Þetta er verulega góður pistill. Spurningin er einmitt þessi : Hvað er best fyrir fólkið í landinu ?

Lilja Skaftadóttir, 30.7.2009 kl. 02:03

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

já þetta bara góður pistill ,þó maður sé ekki honum mikið sammála/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 3.8.2009 kl. 11:59

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það er vandalaust, algerlega, að taka undir þennan pistil þinn, geri það heilshugar.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 8.8.2009 kl. 10:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband