Við Norðmenn höfum að gott án Íslands

Ljóst er að Norðmenn munu ekki leggja nótt við dag til að bjarga íslendingum frá efnahagslegu sjálfsmorði. Allt tal um að það sé raunhæft að binda krónuna okkar við þá norsku er fálega tekið af ráðamönnum Noregs. Þeir ásamt Svíum hafa sagt þurrlega að viljum við komast á afturfæturnar þá beri okkur að sækja um ESB aðild. Hvað það þýðir í raun er að AGS-áætlunin á að duga okkur þangað til að við verðum komin með fullgildan og samþykktan aðildarsamning. Svo mikið um "fullveldi" Íslendinga.

Steingrímur er laumu ESB sinni.

Ríkisstjórnin fór vel af stað með umsókn um aðildarviðræður að ESB. Frágangi IceSave skuldbindinganna, afskriftarleið kvótmála, fyrirgreiðsla við Evu Joly og sérstakan saksóknara. Uppá síðkastið fækkun ráðuneyta og fjárlagagerð síðasta árs virðist hafa farið betur en á horfðist.

Allt ofanskráð hefur Samfylkingunni verið "kennt um" að eiga mestan hlut að máli nema Icesafe sem allir eru sammála um að Sjálfstæðisflokkurinn klúðraði með hjálp Samfylkingar. Umsókn um ESB er Samfylkingarinnar, afskriftarleiðin orðin að hennar svarta-pétri vegna þess að ráðuneyti Jóns Bjarnasonar og ráðherradómur gæti verið í hættu. Icesafe hefur gert Steingrím Jóhann að landsvikara af stórum hluta samflokksmanna hans.

Eva Joly hefur enn verið látin í friði af hælbítunum en Ögmundur hefur vafalaust sjónarhorn á því að láta erlendan kvenmann stýra eftirleit svartra sauða í Íslensku samfélagi. "Að sjálfsögðu á það að vera íslendingur sem þar fer fremstur í flokki" svo ég ímyndi mér nokkuð nákvæmlega hvað hann hefur um það mál að segja.

Allt þetta ofantalda ætti að vera "lítið mál" og hverri sannagjarnri manneskju "ekkert mál". Því er þó ekki að heilsa og stendur VG sem "grasrót" einsog klettur gegn hverri breytingu sem hugsanleg er á staðnaðri þjóðfélagsmynd íslendinga. VG er fyrir mér gömlu vinstri manni ekki meira vinstri en hægri flokkur. Þetta er miðflokkurinn sem Möðruvallahreyfing Framsóknarmanna á 7. áratuginum undir forystu Ólafs Ragnars Grímssonar hefði getað óskað sér.

Reyndar styð ég Steingrím Jóhann heilshugar í viðleitni hans til að koma á stöðugleika til að geta síðan komið raunverulegum breytingum fram. Sennilega er hann líka orðinn "laumu ESB-sinni " sem er hugtak sótt í smiðju Mósesar föður Lilju. Hart er að minnsta kosti sótt að þeim í VG sem leyfa sér að opna fyrir umræðu um ESB. Þöggunin sem er sótt til Hádegis-Mósesar er miskunnarlaust beitt á þá í hjörðinni sem ekki jarma gegn "aðildarviðræðum".

Verði ríkisstjórnin felld í haust mun ekki verða fyrst leitað til VG til að fá starfhæfa ríkisstjórn frekar en Borgaraflokksins. Það er meira í húfi en svo að taglhnýtingar Sjálfstæðisflokksins í ESB málum og nú í kvótamálum geti komið fram sem samstæð heild. VG mun fyrr eða síðar klofna.

(Hið rétta er að það var Sjálfstæðisflokkurinn sem stal stefnu VG í ESB málinu fyrir síðustu kosningar en það eru samt þeir sem hafa tekið forystuna og eigna sér þar með "heiðurinn").

Verðtrygging og viðskiptahöft eiga enn að ríkja hér um áratugaskeið ef landið nær aftur fjárhagslegu fullveldi og leiðtogarnir stýra einsog áður eftir kjölvatninu.

Afnám gjaldeyrishafta er að síga bak við ískaldan jökul einangrunarhyggjunnar og varpa löngum skugga yfir fátæklegt efnahagslíf í framtíðnni.


Norrænar fyrimyndin

Að sjálfsögðu ber okkur enn á ný að leita til norrænna þjóða um fyrirmynd af þinghaldi.

Þetta bull um að Alþingi Íslendinga sé nær tíu alda gömul stofnun er náttúrulega bara að nafninu til. Það þing sem nú er haft uppi líkist í engu því sem Alþingi var í upphafi og þróaðist yfir í niðurlægða afgreiðslustofnun fyrir konungsvaldið þegar það svo endanlega var lagt niður um aldamótin 1800 og ekki aftur upp tekið fyrr en eftir miðja 19.öld og þá eftir fyrirmynd þeirra tíma danskri þingskipan.

Það er svo sannarlega þörf á að nútímavæða þinghaldið og vonandi verður stjórnarskrárbreytingin framundan tæki til þess. Tala minna, hugsa meira voru lokaorð Þráins Bertelssonar í kvöld. Mæli hann manna heilastur.


mbl.is „Alþingi Íslendinga er í ruglinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maíhret við miðjarðahafið

ég held bara að maður verði að kíkja á veðurbloggið hans Einars.
mbl.is Allt á kafi í snjó í S-Frakklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laun fyrrverandi seðlabankastjóra voru...?

Mér skyldist á honum að verið væri að lækka laun hans frá því sem hann hefur haft fram að þessu. Fréttamaðurinn sem "yfirheyrði" hann í kastljósi sjónvarpsins í gær, spurði bara einnar spurningar í löngu viðtali um launamálin. Spurningin var þessi: mun seðlabankastjóri sætta sig við launahækkun?! Þessu var svarað á þá leið að hann myndi ekki sætta sig við launahækkun miðað við þau laun sem hann hefði haft til þessa. Af því að viðtalið var hvorki textað né þýtt á ensku þá getur það verið að fréttaþyrstir íslendingar hafi ekki skilið mælt mál af munni seðlabankastjórans.

Fram kom einnig að seðlabankastjórninn vildi að ákvörðun um launamálin yrði tekin samkvæmt lögum. Var þá ekki nærtækast að ræða við bankanefndina sem ákveður launin samkvæmt lands-og bankalögum.

Nú er mér svo sem sama hvort viðkomandi seðlabankastjóri fái laun yfirleitt. Geri bara ráð fyrir að einhver laun fái hann fyrir vinnu sína. Að gera launamál seðlabankastórans að "landsmáli" sýnir vel að íslendingar hafa ennþá ekki skilið neitt í þeirri umræðu sem fer fram um hrunið og aðdraganda þess.

Meira að segja fyrrverandi Seðlabankastjóri sem skammtaði sjálfum sér hátt á þriðju milljón króna ( sex milljónir á núgengi) skrifar hæðnislegar fyrirsagnir í leiðara til að draga athyglina frá sér og snýkjudýrseðli sinna manna.

Undir þetta taka núna "hinir bestu menn" sem gefur mér það á tilfinninguna að slíkir menn séu ekki til frekar en annað sem til sóma mætti verða þessari andlega brotnu þjóð sem bíður eftir að Godot komi og bjargi henni. Á meðan verður leikritið eftir því.


Kjosum NEI: Kjosum Olaf Ragnar !!!

Hurrah fyrir forseta vorum en ekki rikisstjorn.


mbl.is Jóhanna ætlar ekki á kjörstað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski ástæða til að ganga í ESB?

Svona uppákomur eru greinilega milliríkjamál. Hvaða vettvangur er betri en ESB til að miðla málum? Ekki landsamband íslenskra útgerðarmanna að búktala í gegnum Hafró. Wink
mbl.is Herferð gegn karfa í Þýskalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjarni málsins

Samningur Icesave I og II eru að því að manni er farið að skiljast komnir út af borðinu. Það er eflaust fagnaðarefni þó ég hafi stutt Steingrím í þessu af drenglyndi við góðan dreng. Ég hef aldrei litið á þetta sem "landráð" eða neitt í þeim dúr einsog svo margir hafa fíflast til að kalla þessa samninga gegn betri vitund.

Það má segja að með því að stjórnin skuli ekki hafa sagt af sér og kallað eftir þjóðstjórn eða bráðabirgða minnihlutastjórn, 30. desember síðastliðinn í ríkisráði, þegar Ólafur í reynd neitaði að skrifa undir lögin, það voru stærstu pólítísku mistökin sem við hljótum að súpa seyðið af lengi. Alþingi brást og ríkisstjórnin líka. Forsetinn hefur breytt landslagi stjórnmálanna og situr uppi með erindi forsætis og utanríkisráðherra í raun.

Þetta er kjarni málsins ekki hvort við þurfum að borga minna eða meira. Það skiftir voða litlu máli því miður. Aðalatriðið í þjóðréttarfræðilegu tilliti er að betra er að hafa samning þó vondur sé frekar en engan. Þess vegna verður samið aftur um eitthvað annað sem mun að öllum líkindum innihalda sama grundvöll: að íslenska ríkið beri ábyrgð á greiðslum úr Tryggingasjóði innistæðueigenda bankanna. Ef þetta er ekki með í samningunum verður aldrei samið af hálfu Breta og Hollendinga. Við viljum fá samning og Bretar og Hollendingar munu skrifa hann fyrir okkur með áðurnefnd orð í textanum. Vextir lækka vonandi eitthvað og með einhverjum barbabrellum fjrámálaheimsins munum við borga allt saman einsog til hefur staðið.

Sennilega munu þeir lóða stemminguna og ef þeir finna að íslenska samninganefndin er ekki samstíga þó í henni séu fulltrúar allra á þingi, þá munu þeir freista þess að þessi stjórn segi af sér og ný "ábyrgari" taki við.

Þá komum við aftur að téðum forseta og ábyrgð hans á lömuðu framkvæmdarvaldi. Það mun standa upp á hann að koma þessu máli í gegn að lokum. Því án samnings verður ekki fram haldið þeirri "endurreisn" sem hefur verið ráðgerð.

Frá mínum bæjardyrum séð er Icesave I og II ekki lengur á dagskrá. Og mér er sama um það. Tel reyndar mikilvægi hans ofmetið á miðað við það sem annars hefur verið látið bitna á þjóðinni: Endurreisn bankanna með tilheyrandi afskriftum til auðmanna gerist ekki án þess að þjóðin borgi fyrir það með vöxtum og verðtryggingu. Hvort Icesave sé dropinn sem fyllir mælinn þá er sá samningur og greiðslur fyrir hann ekkert ósanngjarnari en hitt sem íslendingar ætla að gangast undir til að bjarga bankakerfinu og útgerðinni. - Þetta eru þeir þræla samningar sem íslendingar hafa gengist undir hingað til að halda uppi höfðingjastéttinni sinni. Núna er það gert með verðbótum ofaná vexti. Innlendir höfðingjar hafa ávalt reynst alþýðunni vondir og þeir eru það líka núna en með því að geta bent á erlenda höfðingja taka þeir athyglina frá sér. - Það ástand getur varla varað lengi. Forsendurnar til að reka þetta þjóðfélag með ráðum fortíðarinnar eru brostnar.


mbl.is Íslendingar greiði ekki Icesave-vexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins loksins

kemur hrunið...það hafði tekist að fresta verstu áföllunum...en núna höfum við ekkert val annað en að taka skrefið afturábak inn í framtíðina. Forsetaembættið verður vonandi lagt niður sem fyrst.
mbl.is Staðfestir ekki Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjaldeyrir og áhyggjur AGS

Á meðan við horfum upp á met hallarekstur íslensku krónunnar með tilheyrandi tjóni fyrir skuldunauta á leið í sláturhús bankanna með tilheyrandi eignaupptöku er stærsti hluti gjaldeyristekna sameignar þjóðarinnar skráður og geymdur í Evrum eða pundum. Þeir sem hafa umráð yfir þessum gjaldeyri eru ekki Seðlabankinn eða AGS. Flannagan fulltrúi sagði í sjónvarpinu í gær að gera yrði krónuna aðlaðandi fyrir eigendur fjármagnsins svo það yrði flutt "heim" og gæti nýst við að lækka skuldastöðuna í formi hækkandi krónu.

Hér er komið upp þrátefli um hag heimila sem útflytjendur fisks eiga alltaf síðasta leikinn og munu að sjálfsögðu verja hag sinn sem felst í því að krónan sé lágt skráð og að þeir hafi samninga við ESB um frjálsa fjármagnsflutninga. Þessir sömu aðilar sem halda okkur í skuldafjötrunum vilja ekki að við Íslendingar almennir borgarar þessa lands fáum aðgang að þessum gjaldeyri og enn síður að vi getum fengið laun okkar og skuldir í Evrum svo eini marktæki gjaldeyririnn sé tiltekinn og sá sem um ræðir þegar menn tala um nýjan gjaldmiðil handa þjóðinni (ekki bara útgerðarmönnum því þeir hafa þegar tekið upp þennan gjaldmiðil í raun). - Spurningin verður sú að ef íslendingar sjá ekki fyrir sér að komast í ESB og taka upp Evrur þá verða þeir að nýta frumburðarrétt sinn og þjónýta útgerðarfyrirtækin eða setja þvílíkar hömlur á sömu fyrirtæki í skjóli neyðarlaga að Hugo Chavez myndi minnast okkar í morgun og kvöldbænum sínum?

Þá kemur ekkert annað til greina en að segja sig frá EES samningunum enda þjóna þeir bara útflutningsaðilum svokölluðum á kostnað okkar eigenda auðæfanna. EES samningurinn er að verða þvílík blindgata fyrir almannaheill að fáir góðir kostir eru í stöðunni nema full aðild að ESB eða úrsögn úr EES.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband